Hvernig var að vera barn á tíma Jóns Sigurðssonar?

Myndasafn

Óskabarn: Bókin um Jón Sigurðsson

Hann var kallaður Nonni, herra Sívertsen og Jón forseti. Það er talað um hann sem sjálfstæðishetju, sameiningartákn þjóðarinnar og óskabarn Íslands. Það er stytta af honum á Austurvelli, mynd af honum á fimmhundruðkallinum og afmælisdagurinn hans var gerður að þjóðhátíðardegi. Hvað er svona merkilegt við þennan Jón?

Óskabarn: Bókin um Jón Sigurðsson fjallar um ævi og störf Jóns Sigurðssonar og er ætluð börnum til skemmtunar og fróðleiks – og um leið tilvalin til upprifjunar fyrir þá fullorðnu. Þetta er litrík saga ósköp venjulegs sveitastráks sem verður stjórnmálamaður í Kaupmannahöfn og lykilmaður í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Um leið fjallar bókin um kosningarétt, lýðræði og byltingar í Evrópu á 19. öld. 

Bókin er fagurlega myndskreytt með vatnslitamyndum eftir Sigurjón Jóhannsson auk fjölda annarra teikninga og ljósmynda. Höfundur bókarinnar, Brynhildur Þórarinsdóttir, hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir bækur sínar, meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endursögn sína á Íslendingasögunum Njálu, Eglu og Laxdælu.