Fóstursonurinn og fleiri börn
Haustið 1859 tóku Ingibjörg og Jón í fóstur Sigurð Jónsson frá Steinanesi, son Margrétar systur Jóns og manns hennar Jóns Jónssonar skipstjóra. Svo virðist sem lengi hafi staðið til að Sigurður færi til Jóns og Ingibjargar en í sendibréfi frá Margréti til Jóns kemur fram að hún óskar þess að Sigurður verði hjá Jóni. Þá var Sigurður ríflega hálfs árs gamall en til Ingibjargar og Jóns kom hann rúmlega átta ára gamall og var hann hjá þeim til fullorðinsára.
Ingibjörg og Jón tóku oft að sér að greiða götu Íslendinga sem komu í ýmsum erindagjörðum til Kaupmannahafnar. Meðal annars voru veik ungmenni send til þeirra og þau hjón aðstoðuðu við að leita þeim lækninga og skutu jafnvel skjólshúsi yfir þessi ungmenni um lengri eða skemmri tíma. Þau voru einnig viljug að veita systkinabörnum sínum ýmsa aðstoð, Ingibjörg studdi Einar bróðurson sinn til náms heima á Íslandi og Ingibjörg dóttir Jens bróður Jóns dvaldi hjá þeim hjónum í um ár.
Fóstursonurinn Sigurður. Vel var hugsað um Sigga litla eins og hann var jafnan kallaður í Kaupmannahöfn. Hlaut hann góða menntun og útskrifaðist úr laganámi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1875. Þremur árum síðar fékk Sigurður sýslumannsembætti í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu og hélt hann því embætti til æviloka.
Um miðjan nóvember 1866 keypti Jón Sigurðsson skó fyrir sig og fósturson sinn eins og sjá má á þessum reikningi (
JS 145 a fol).
Teikning sem Þorvaldur bróðir Sigurðar sendi honum ásamt sendibréfi sem skrifað var í Steinanesi 30. ágúst 1862. Í bréfinu segist Þorvaldur sjaldan fá tíma til að leika sér, það sé helst að hann gefi sér tíma til að teikna skip. Hann biður svo bróður sinn að senda sér nokkra stálpenna ,,ef við lifum af veturinn...“ eins og hann orðar það (
Lbs 2591 4to).
Varðveist hefur sendibréf Margrétar til Sigurðar sonar síns í Kaupmannahöfn frá árinu 1862 en þá var Sigurður orðinn 11 ára og hafði verið hjá Jóni og Ingibjörgu í þrjú ár. Í bréfinu segist Margrét fyllilega treysta bróður og systur (innan fjölskyldunnar voru Jón og Ingibjörg ætíð kölluð bróðir og systir) til að ákvarða framtíð hans en síst vilji hún að hann leggi fyrir sig stríðslist eins og hún kallar það (
Lbs 2591 4to).